Oriental

Sérsniðnar hópferðir

Minni hópar

 

 

Upplifðu Asíu á þínum forsendum

Við erum lítil og metnaðarfull ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í sérsniðnum hópferðum til Asíu. Hvort sem um er að ræða vinahóp, starfsmannaferð, fjölskyldu eða stærri hóp, þá hönnum við ferðina frá grunni með þínar þarfir og óskir í forgrunni.

Við bjóðum upp á einstakar ferðir til áfangastaða á borð við Kína og Tæland – og margt fleira spennandi í Asíu. Hvort sem þig dreymir um að rölta um líflegar götur stórborga, upplifa forna menningu, njóta náttúrufegurðar eða slaka á á framandi ströndum, þá sjáum við um að gera ferðina að veruleika.

Af hverju að velja okkur?

  • Sérsniðnar ferðir fyrir bæði litla og stóra hópa

  • Persónuleg þjónusta og ráðgjöf

  • Djúp þekking á áfangastöðum í Asíu

  • Áreiðanlegir samstarfsaðilar á staðnum

Við leggjum áherslu á gæði, sveigjanleika og ógleymanlega upplifun. Hver ferð er einstök – rétt eins og hópurinn sem fer.

Við hjálpum þér að búa til ferð ógleymanlegt ferðalag.